Aðalsíða
Þjónusta
Undirbúningur
Dæmi um útför
Minnislisti
Kistur
Hafðu Samband
Senda Póst
Graflugtir
 
Öskuker
 
 
Ýmislegt
 
 
 
 
 

 


 
Frímann Andrésson
Útfararstjóri
Sími: 821 5138
  Hálfdán Hálfdánarson
Útfararstjóri
Sími: 898 5765

Þegar andlát ber að höndum.

Allir verða fyrir því einhvern tíma á ævinni að missa náinn ástvin. Dauðinn gerir oftast ekki boð á undan sér og skyndilega stendur fólk frammi fyrir þungbærri reynslu. Sorgin er eðileg viðbrögð við missi ástvina. Sorginni fylgja margvíslegar tilfinningar og menn bera sorg sína með mismunandi hætti.

Syrgjendum ber að sýna nærgætni og virðingu. Þar sem sorgarviðbrögð eru breytileg skiptir miklu máli að þeir, sem umgangast aðstandendur, hafi mikla þekkingu og reynslu í mannlegum samskiptum.

Á sama tíma og sorgin sækir að þurfa aðstandendur að sinna mörgum aðkallandi málum varðandi útför ástvinar síns. Starfsmenn Útfararþjónustu Hafnarfjarðar hafa áralanga reynslu í umsjón útfara og eru vanir að umgangast fólk á viðkvæmustu stundum í lífi þess. Þeir sýna aðstandendum fullan trúnað og eru bundnir þagnareiði um allt það sem fram fer í starfi þeirra .

Á skrifstofu Útfararþjónustu Hafnarfjarðar er góð aðstaða til þess að ræða við aðstandendur í næði um mörg viðkvæm ákvörðunaratriði.
Þegar haft er samband við útfararstjóra eða prest vegna útfarar þurfa eftirfarandi upplýsingar að liggja fyrir: Fullt nafn hins látna, lögheimili, kennitala, dánarstaður, dánardagur, staða, nafn nánasta aðstandanda, lögheimili hans, kennitala og sími.

Útfararþjónustan selur kistur og krossa hvert á land sem er.

Útfararþjónusta Hafnarfjarðar er til húsa að Stapahrauni 5, Hafnarfirði.

Skrifstofan er opin frá 8:00 til 17:00 virka daga, en þjónusta er allan sólarhringinn og um helgar.

Hér má nálgast bækling okkar, smelltu hér til að sækja bækling.

NÝTT ! Höfum tekið í sölu kistur frá Tommerup Sjá nánar hér !

Með þökk og vinsemd fyrir hönd Útfararþjónustu Hafnarfjarðar ,

Hálfdán Hálfdánarson , Ólöf Helgadóttir og Frímann Andrésson útfararstjóri.


 
 
 
 
Sálmar
 
 

Legsteinar
   
   
   
Útfararstofur
   
   
Ýmsir tenglar